Abaco Heilsulind

Andlitsbað Yfirborðshreinsun Nudd Ampúla Maski Dagkrem og augnkrem 60 mínútur kr. 9.200 Lúxus

Andlitsböð

Andlitsbað
  • Yfirborðshreinsun
  • Nudd
  • Ampúla
  • Maski
  • Dagkrem og augnkrem

60 mínútur kr. 9.200

Lúxus andlitsbað
  • Yfirborðshreinsun
  • Djúphreinsun
  • Ampúla
  • Nudd
  • Maski
  • Dagkrem og augnkrem

90 mínútur kr. 13.990

Lúxus andlitsbað með lit og plokkun

  • Yfirborðshreinsun
  • Djúphreinsun
  • Ampúla
  • nudd
  • maski
  • Dagkrem og augnkrem
  • litun og plokkun

120 mínútur kr.17.990

 

Guinot meðferðir

Hydradermie

Er mjög árangursrík djúphreinsi-ograkameðferð fyrir andlit, háls, bringu og hina viðkvæmu húð umhverfis augun. Hún örvar efnaskipti sem leiðir til örari endurnýjun frumna og húðin fær aukinn raka og mýkt. Hún þéttir húðina og gefur henni fallegri áferð. Djúphreinsar húðina, mjög góður árangur með slæma bóluhúð. Stuðlar að rakajafnvægi og réttu sýrustigi húðar.

  • 60 mínútur kr. 9.790
  • 90 mínútur kr. 13.990

Hydradermie lift

Andlitslyfting. Meðferðin byggist á vöðva-og sogæðaörvun ásamt anlits-og herðanuddi. Árangur meðferðar sést greinilega strax eftir eitt skipti. Vöðvaörvun eykur stinnleika andlits-og hálsvöðva sem leiðir til sléttari húðar, lyftingu og mótunar anlitsins. Húðin verður stinnari og unglegri. Sogæðaörvun eykur úrgansefnalosun húðvefja sem dregur úr þrota og baugum. Hreinsunarhlutverki húðar er aukið sem leiðir til aukinnar frumustarfsemi og hraðari endurnýjun frumna.

  • 60 mínútur kr. 9.790
  • 120 mínútur kr. 18.990

Aromatic

Andlitsmeðferð sem felst í afar þægilegu nuddi með sérstaklega virkum ilmkjarnaolíum. Samspil ilmkjarnaolía og plöntukrafta gera þessa meðferð mjög áhrifaríka. Til að koma til móts við þarfir hverrar húðargerðar fyrir sig er valið úr fimm ilmkjarnaolíublöndum og tíu plöntuseyðum.

  • 60 mínútur kr.9.790

Beauty neuve

Ávaxtasýrumeðferð gerir húðina móttækilegri fyrir virkum efnum þar sem hún eykur húðflögnun auk þess sem nýmyndun húðfrumna verður meiri. Tvöföld virkni næst með ávaxtasýrum, C vítamíni og endurnýjandi efnasamböndum. Meðferðin vinnur á bóluvandamálum, grynnkar hrukkur og húðin verður mýkri, frískari og áferðafallegri.

  • 60 mínútur kr.9.790

Liftosome

Stinnandi meðferð með kokkteil vítamína og appelsínuþykknis sem húðin drekkur i sig vegna áhrifa leirkennds hitamaska.

  • 60 mínútur kr.9.790

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf