Silk peel kristals húðslípun
Er meðferð sem fjarlægir ysta lag húðarinnar með notkun örsmárra kristalla.
Þessi einstaka meðferð fjarlægir dauðar húðfrumur og örvar vöxt nýrra fruma og bandvefja.
Árangur og hvenær?
Kristalhúðslípunin vinnur á línum, brúnum blettum, húðsliti, óhreinni húð og exemhúð, auk þess sem hún dregur verulega úr bóluörum. Húðin mun líta betur út, fínar linur og brúnir blettir hverfa, dýpri línur, ör og húðslit minnka mikið. Húðin verður mýkri,sléttari og unglegri. Meðferðin gefur fallega áferð, vinnur gegn öldrun húðarinnar og er örugg fyrir allar húðgerðir.
Árangur kemur strax í ljós eftir fyrstu meðferð. Húðin fær ferskan blæ, verður hreinni, mýkri og unglegri.
Mælt er með 2 – 6 meðferðum með viku millibili til að ná hámarksárangri, en það fer eftir húðtegundum og skemmd á húð.
Meðferðin sjálf og eftirmeðferð
Áður en meðferð hefst er húðin hreinsuð. Síðan er efsta lag húðarinnar slípað með því að nota örsmáa kristalla sem beint er að yfirborði húðarinnar með mismunandi styrkleika.
Meðferðin tekur 30 mínútur og líkur með að borið er á rakakrem.
Mikilvægt er að fylgja eftir umhirðu húðarinnar eftir Silk Peel meðferð til að tryggja tilskilinn árnangur.
Eftir silk peel meðferð þarf að forðast eftirfarandi í 1-3 daga
- Andlitdsbað, gufu, nudd og saunaböð.
- Sól og ljósabekki.
- Sund, heita potta og sjó.
- Líkamrækt og erfiðisvinnu, svitamyndun orsakar sviðatilfinningu og ertir húðina.
- Sýrukerm og önnur virk krem í 7 daga eftir meðferð.
Nota má andlitsfarða strax eftir meðferð.
Mikilvægt er að nota rakakrem tvisvar til þrisvar sinnum á dag á meðan meðferð stendur.
Kostir silk peel og fyrir hverja
- Meðfeðin tekur stuttan tíma.
- Óþægindi eru lítil.
- Húðin er fljót að ná sér.
- Engar sýrur né leysigeislar eru notaðir.
- Ekki þarf að taka sér frí frá störfum.
Silk peel hentar fólki sem
- Hefur ekki tíma tl að taka sér frí fyrir önnur meðferðarform.
- Lifir fjölbreyttu lífi og vill geta haldið áfram að stunda félagslíf eða útivist.
- Er með viðkvæma eða ofnæmisgjarna húð.
- Hefur feita húð og hættir því til að fá bólur sem illa hefur gengið að meðhöndla.
- Er ungt og hefur fengið ótímabærar húðbreytingar og hrukkur og vill halda húð sinni fallegri.

