Hjá okkur færð þú konudagsgjöfina. Bjóddu elskunni þinni í dekur hjá okkur.
Öll alhliða snyrting. Hvernig væri að skella sér í Ilmolíuandlitsbað, lúxus fótsnyrtingu eða lúxusandlitsbað?
Við mælum við með nuddi eftir erfiðan dag, heit og kaldsteina nudd er tilvalin gjöf fyrir ástina þína.
Pottadekur - njótið dagsins saman í heitapottinum með herðanuddi og maska í rólegheitum.
Einnig viljum við minna á gjafabréfin vinsælu sem að hægt er að nota bæði í Abaco og Jörubúðunum.
Í tilefni af konudeginum ætlum að hafa opið sunnudaginn 20 febrúar frá 13 - 18.
Einnig viljum við vekja athygli á að föstudaginn 18 febrúar koma tveir snyrtifræðimeistarar þær Þórhalla og Hrund frá Lipurtá snyrtistofu og bjóða upp á tattoo eða varanlega förðun á augu, brúnir og varir.
Notaður er jurtalitur og þessvegna eyðist liturinn smám saman og er endingin 1 - 4 ár. Einnig lagfæra þær eldri tattoo. Hægt er að fá línu kringum augu, á augabrúnir eða varalínu sem stækkar eða lagfærir eftir þörfum hvers og eins. Meðhöndlunin eru tvö skipti, með tveggja vikna millibili.

