Tattoo
á augu, brúnir og varir
Föstudaginn 8. apríl munu þær Halla og Hrund snyrtifræðimeistarar frá snyrtistofunni Lipurtá í Hafnarfirði koma til okkar og bjóða viðskiptavinum okkar upp á tattoo eða varanlega förðun.
þær eru með áralanga reynslu í tattoo. Þær nota jurtaliti og þessvegna eyðist liturinn smám saman og er endingin 1-4 ár. Einnig lagfæra þær eldri tattoo.
Hægt er að fá línu í kringum augu, á augabrúnir eða varalínu sem stækkar eða lagfærir eftir þörfum hvers og eins. Meðhönlunin eru tvö skipti, með tveggja vikna millibili.
Hér að neðan má sjá mynd fyrir og eftir meðhöndlun á tattoo á augabrúnum og í kringum augu.
Fyrir meðhöndlun.
Eftir meðhöndlun.


