Abaco Heilsulind

NÚ FER ALLT AÐ FYLLAST Í SNYRTINGU FYRIR JÓLIN, PANTA STRAX !! Nú er best að drífa sig og panta strax í snyrtingu bæði í Abaco og hjá Dagný í Jöru. Einnig

NÚ FER ALLT AÐ FYLLAST Í SNYRTINGU FYRIR JÓLIN, PANTA STRAX !!

Nú er best að drífa sig og panta strax í snyrtingu bæði í Abaco og hjá Dagný í Jöru. Einnig er mikið að gera í nuddinu og ef þú vilt komast í nudd fyrir jól er best að taka upp símann strax. Mjög vinsælt er að koma í pottadekur, bæði pör og hópar, fá herðanudd og maska og slaka á og njóta lífsins, dásamlegt.

Minnum einnig á gjafabréfin okkar sem er mjög vinsæl jólagjöf. Það er hægt að kaupa ákveðna meðferð á snyrtistofu, nudd eða ljósakort eða ákveðna upphæð sem hægt er að nota í hvað sem er. Gjafabréfin er hægt að nota bæði í Abaco og snyrtivöruversluninni Jöru í Hafnarstræti og á Glerártorgi.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf