Abaco Heilsulind
HÓPKAUPSTILBOÐ Í NUDD, LJÓS, POTT OG GUFU
jólagjöf í nudd, ljós, pott og gufu á aðeins 4900 (fullt verð er 8650).
Nú er bara að nýta tækifærið og fá frábæra jólagjöf á ævintýralegu lágu verði.
NÚ FER ALLT AÐ FYLLAST Í SNYRTINGU FYRIR JÓLIN, PANTA STRAX !!
nuddinu og ef þú vilt komast í nudd fyrir jól er best að taka upp símann strax. Mjög vinsælt er að koma í pottadekur, bæði
pör og hópar, fá herðanudd og maska og slaka á og njóta lífsins, dásamlegt.
Minnum einnig á gjafabréfin okkar sem er mjög vinsæl jólagjöf. Það er hægt að kaupa ákveðna meðferð á snyrtistofu,
nudd eða ljósakort eða ákveðna upphæð sem hægt er að nota í hvað sem er. Gjafabréfin er hægt að nota bæði í
Abaco og snyrtivöruversluninni Jöru í Hafnarstræti og á Glerártorgi.
Komdu til okkar :)
10 tíma ljósakortum til 15. sept. vorum að fá aftur Sexy sol og Love my
tan kremin og einnig með mikið úrval af Ed Hardy kremunum.
OG svo er 10% afláttur af Guinot andlitsmeðferðum og
10 % afsláttur af Demantshúðslípun sem gilda til 24.sept.
Svo mælum við auðvitað með því að fólk njóti lífsins kíki við á okkur og fari
í dásamlegt nudd eða dekur á snyrtistofunni, kíkji í pottadekur sem er frábær leið til afslöppunnar. Við bjóðum upp
á herðanudd, kaldsteinanudd og andlitsmaska í pottinum.
VARÚÐ!! Falsaðar snyrtivörur!!
snyrtivörur séu í umferð hér á landi. Um er að ræða eftirlíkingar af þekktum merkjum sem ekki hafa gengist undir nauðsynlegar
prófanir á efnainnihaldi og er því hætta á ofnæmi og ýmsum húðkvillum af notkun þeirra.
Tollgæslan lagði hald á mikið magn af fölsuðum snyrtivörum fyrir tæpu ári. Þar var um að ræða eftirlikingar af vinsælum
vörum frá MAC, Bobbi Brown Yves Saint Laurent og Lancôme. Umbúðirnar utan um eftirlíkingarnar voru það vel falsaðar að senda þurfti
vöruna til greiningar hjá framleiðanda erlendis til að fá staðfest að um falsanir væri að ræða.
Á síðustu árum hefur færst mjög í aukana að tollgæslan leggi hald á falsaðar vörur og því má ætla að
meira magn af þeim sé í umferð á landinu en áður, þar sem gera má því skóna að ekki takist að finna allt
það sem flutt er til landsins. Á síðasta ári fundu tollgæslumenn á Íslandi á stuttum tíma um 300 stykki af fölsuðum
snyrtivörum og þykir það mikið miðað við smæð markaðarins hér á landi. Magn falsaðra snyrtivara í umferð hefur aukist
mjög erlendis og er ástæða til að ætla að sama sé uppi á teningnum hér.
Dæmi um krabbameinsvaldandi efni
Ómögulegt er fyrir neytendur að vita hvaða efni eru í snyrtivörum sem eru eftirlíkingar af viðurkenndum vörum. Við framleiðslu
eftirlíkinganna er ekki fylgt reglum EES um efnainnihald og hætta á aukaverkunum af notkun þeirra. Dæmi eru um að krabbameinsvaldandi efni séu í
fölsuðum snyrtivörum. Erlendis eru dæmi þess að fólk hafi misst hárið eftir að hafa reglulega notað eftirlíkingu af viðurkenndri
hársápu. Ekki hafa komið upp svo alvarleg tilvik á Íslandi, enn sem komið er.
Öruggast að kaupa af viðurkenndum söluaðilum
Hjá embætti tollstjóra fengust þær upplýsingar að ástæða sé til að vara fólk við því að kaupa
snyrtivörur af aðilum sem ekki teljast fullgildir sölustaðir, svo sem í gegn um heimsölu, á mörkuðum og í gegn um vefsíður sem ekki eru
á vefum gildra söluaðila. Þá er ástæða til að vera vel vakandi ef aðeins einstakar vörur úr vörulínu eru til sölu og
þá á mun lægra verði en út úr búð. Athygli er vakin á því að eftirlíkingar hafa orðið mun betri með
árunum og lykt af eftirlíkingum oft í ætt við lykt af raunverulegu vörunni þó gæðin séu ekki til staðar.
Samkvæmt upplýsingum frá Tollstjóra koma þær fölsuðu vörur sem lagt hefur verið hald á, hingað til, allar frá
Asíu.
Þeir sem flytja inn eða selja falsaðar vörur mega búast við kæru og /eða sektum auk þess sem viðurkenndir innflytjendur ýmissa þekktra
merkja hafa gefið út að þeir muni fara fram á lögbann á sölu og innflutning eftirlíkinga.
Sjá nánari upplýsingar um falsaðar vörur á vefnum Falsanir.is
Þeir sem hafa upplýsingar um falsaðar vörur í umferð geta sent inn nafnlausa ábendinga með því að smella hér. Þá er einnig hægt að hafa samband beint við embætti
tollstjóra í gegn um netfangið smygl(hjá)tollur.is
Fréttin er tekin af http://www.visir.is/
http://visir.is/haetta-getur-stafad-af-folsudum-snyrtivorum/article/2011110819853
Fullt af nýjum og fallegum naglalökkum :)
Fullt af skemmtilegum litum í shatterum frá Depend og svo fleiri litir í venjulegum lökkum.
Skemmtilegir sumarlitir frá Pronails.
Og svo smart litir frá O.P.I
Tilvalið sem tækifærisgjöf eða bara til þess að lífga við daginn :)